6.8.04

Flækja er skemmtileg

Það má ekki misskilja mig, mér sýnist á EINA kommentinu mínu að ég hafi móðgað hana Bryn mína þar sem ég minntist á ódýra klippingu. Hennar lífsstíll er allt allt öðruvísi en minn, hún vill garð, hún vill dýra klippingu og ýmislegt annað sem ég vil ekki. Það gerir hana ekki að verri manneskju, síður en svo.
Við erum jafn misjöfn og við erum mörg og það er það sem gerir lífið svo skemmtilegt. Málið er að Bryn gengur nokkuð vel að halda utan um fjármálin, ég þekki nokkrar konur og menn sem kunna að reikna út skatta og vexti o.fl. og Bryn er ein af þeim. Hún leyfir sér að fara í dýra klippingu eins og ég leyfi mér að fá mér kampavín á Hotel du Louvre. Og ég get lofað ykkur því að hvorug okkar er að gera þetta vikulega!
Ég held að aðalmálið sé að leyfa sér einhvern munað, maður þarf bara ekki að baða sig í munaði á kreditinu og það er það sem ég er að "skammast" yfir í pistlinum mínum hér á undan. Málið er að finna þennan gullna meðalveg og halda sig á honum svona að mestu.
Að þessum orðum töluðum ætla ég að hoppa í vinnuna. Munið að skilja eftir komment! Takk Bryn.
Lifið í friði og kyssið kviði.