tilviljun?
Ég kom og hlammaði mér í sófann með tölvuna við hlið mannsins míns sem fylgist með boltanum og pakkar inn bókum sem hann var að selja á e-flóanum. Ég kíki aftur á auglýsingu um atvinnuhúsnæði sem mér barst í dag og segi stundarhátt að ég þyrfti að kíkja á þetta á morgun, mér finnst myndin á gulu síðunum svo skrýtin en auglýsingin hljómar spennandi. Svo segi ég heimilisfangið og maðurinn minn lítur undarlega á mig og spyr hvort ég sé ekki örugglega að grínast. Ég skil ekki hvað hann meinar og hann lyftir upp pakkanum sem hann var nýbúinn að merkja vandlega. Sama heimilisfang.Lifið í friði.
<< Home