hvað eigum við nú...
Dóttir mín fékk fallega myndskreytta bók um Búkollu í afmælisgjöf og er þessi klassíska saga lesin hér á hverju kvöldi um þessar mundir.Það er allt í fína með frásögnina nema eitt sem truflar mig ógurlega. Í "minni" útgáfu spyr drengurinn: Hvað eigum við nú til bragðs að taka Búkolla mín? En í þessari bók verður það: Hvað eigum við nú að gera, Búkolla mín?
Lifið í friði.
Efnisorð: scooters
<< Home