11.4.06

getraunin heldur áfram

Eftir fimm spurningar og tvær aukaspurningar er Eyja með 2 Sigurboga, ghrafn með 1 Eiffel og Björn Friðgeir með 2 Notre Dame. Björn fær fjöður úr höfði dansmeyjar á Rauðu Myllunni fyrir að gúggla ekki.
Farfuglinn er með eitt rauðvínsglas fyrir að svara annarri aukaspurningunni.
Hinni var í raun ekkert svar við svo það er hundaskítur.

6. Í hvaða mynd dansa Goldie Hawn og Woody títtnefndur Allen saman undir Tournelle-brúnni (sem er sem sagt enn og aftur við Signubakka, merkilegt hvað Kaninn er upptekinn af þessari sprænu)?
Aukaspurningin er: Hvaða land elskar Woody Allen mest og í hvaða mynd notar hann þá staðreynd í endahnút myndarinnar?

Lifið í friði.