24.4.08

spennan magnast

Í dag flaug skylmingastúlkan á vit örlaga sinna og á laugardaginn ræðst það hvort hún kemst til Peking. Ég krosslegg fingur og sendi henni alla mína bestu strauma.
Bitra konan í mér spyr sig líka hvort eitthvað verði fylgst með þessu knáa fólki í íslenskum fjölmiðlum eða hvort það muni eingöngu gerast ef þau ná inn?
Hér er alla vega spennan í hámarki og svissneski vefurinn fie.ch kominn í bókamerki.

Í dag tókst mér líka að læsa mig úti. Löng saga sem varð til þess að ég átti indæla stund með vinkonu minni og nágranna sem ég hitti næstum aldrei. Og m.a.s. íslenskri mömmu hennar líka, sem er næsti bær við að eiga indæla stund með sinni eigin mömmu.

Lifið í friði.