2.4.08

póstur

Hingað að miðju alheimsins var að berast pakki frá hjara veraldar. Á pakkanum er engin dagsetning, engin fylgiskjöl fyrir utan litla græna miðann. Á honum stendur Christmas gift. Upp úr honum koma undurfagrir vettlingar á börnin og brennivínssokkur handa foreldrunum.
Sem betur fer voru miðar á pökkunum svo ég veit hver sendi þetta.

Í dag eru sem sagt jólin hér í Copavogure.

Á morgun má svo blessað vorið koma endanlega, það hefur náðst að verða milt og bjart þegar líða fer að kvöldi núna síðustu tvo daga. Í leikfiminni í gær var samhljóða ákvörðun um að fara ekkert inn, sprikla bara og sprella úti í kvöldsólinni sem var svo dásamleg.

Lifið í friði.