5.3.07

robbi grillaði

Mér datt allt í einu í hug sú skemmtilega staðreynd og tilviljun að Robbe-Grillet er á leið til Íslands og að á móti honum verður eflaust tekið með pompi og prakt, enda frægur maður og virtur í bókmenntaheiminum.
Hann verður með bókasýningu og fyrirlestur 20. apríl nk. Ég veit ekki alveg hvað bókasýning er en fyrirlesturinn verður áreiðanlega skemmtilega óskiljanlegur og kannski er ókeypis vín á eftir að launum fyrir mætingu.

Robbe-Grillet er yfirlýstur masókisti, eiginkonan er herrann hans og klæðist alltaf svörtum leðurgalla. Hún hefur skrifað skáldsögur með BDSM-þemanu undir nafninu Jean de Berg, og skrifaði, í samvinnu við Catherine Millet (líka mjög dónaleg skáldkona, frægust fyrir bókina La vie sexuelle de Catherine M - Kynlíf Catherine M), grein sem hefur titilinn: "Ekki sekar, ekki fórnarlömb: Frjálst að stunda vændi".

Nei, jú. Fannst bara skemmtilegra að þið vissuð þetta, a.m.k. þið sem eruð með klám eða kynlíf eða bæði á heilanum eins og ég.

Lifið í friði.