12.4.06

Forystan i Noregi

Ghrafn hefur náð forystu og er með þrjá Eiffelturna.
Myndin er hin drepleiðinlega Prêt-à-Porter e. Robert Altman frá 1994.
Aukaspurningunni um hvað varð um steinana úr Bastillunni var ekki svarað. Steinarnir voru notaðir í brúna frá Concorde-torginu (þar sem fallöxin stóð lengst í byltingunni) yfir í þinghúsið. Það þótti vel við hæfi að traðka á gamla fangelsinu til að komast í þingið.

10. Í hvaða mynd sjáum við Kevin Kline ræna tösku af Meg Ryan á Gare de Lyon lestarstöðinni?
Aukaspurning: Hvaða franska mynd hefst á atriði á frægum veitingastað á þessari sömu lestarstöð?

Svar til Gísla út af orðabelg hér neðar: Ég mun bráðlega skrifa pistil um það hvað "slæðukona" er.

Lifið í friði.