3.1.08

metafóra fór

Í gærkvöldi, hvar ég lá í rúminu milli svefns og vöku, kom einhver mynd í huga mér, eitthvað sem mér fannst stórkostlegt, einhver samlíking eða metafóra, eitthvað var það.
Ég man að ég hugsaði um það hvort ég ætti að hlaupa upp og skella þessu inn á bloggið strax en ákvað svo að þetta væri svo stórkostlegt að ég myndi ekki gleyma þessu. Hvað skyldi þetta nú hafa verið?

Lifið í friði.