maður lifandi kaka
Mér finnst ástæðulaust að leyna ykkur því að möndlukakan á maðurlifandi.is er dásamleg.Ég ætla að setja aðeins minni sykur næst og í stað 2 tsk. egg setti ég einfaldlega 2 egg.
Kakan er algert nammi og mjög auðvelt að gera hana. Möndluhökkunin er kannski smá maus, en þar sem magnið er ekki meira, reyndist það fljótlegt. Að hakka hnetur og súkkulaði er mjög auðvelt á bretti með góðum hníf sem maður ruggar bara yfir hráefninu þar til manni finnst allt orðið nógu fínhakkað. Restin er bara písofkeik eins og Ingibjörg myndi segja. (Hún sagðist, í útvarpsviðtali, hafa málað herbergið sitt Signublátt, ég er enn að hlægja...)
Lifið í friði.
<< Home