2.2.08

catwoman

Hvernig upplifa 4 ára gutti og 6 ára dúlla Catwoman? Við horfðum á ýmsar senur úr Batman Returns, teiknimyndum og gömlu seríunni áðan. Þau voru ógurlega spennt og hálfgrobbin, ég held þau hafi alveg skynjað að þau voru að horfa á fullorðinsefni, skynjað að þetta er ekki alveg í stíl við Einu sinni var, BambaÖskubusku. Má alveg sýna litlum börnum svona sexý gellur lumbra á vesölum lögregluþjónum og eyðileggja mollið og svona? Mér finnst það í lagi, en segið mér ef þið eruð hneyksluð.
Þeim fannst líka Time Warp ferlega skemmtilegt. Í næstu viku leigi ég RHPS úti á bókasafni, maðurinn minn hefur aldrei séð hana! Og í leiðinni ætla ég að taka Little Shop of Horrors.

Lifið í friði.