landafræði
Landafræði var ekki mitt uppáhaldsfag og ég er ekkert sérlega spennt fyrir landafræðispurningunum í Trivial Pursuit. En þetta stingur þó í augun, það er fyrirsögnin sem er tengill elskan.Fyrirlesturinn minn gekk líka svona bara vel. Reyndar talaði aðalmaðurinn svo ógurlega lengi að ég gat ekki verið með of langt mál en þarna hitti ég fólk úr bransanum og fólk sem ætlar að taka á móti Íslendingum í Suður Frakklandi og snitturnar voru góðar. Enginn fór á barinn. Og ekki ég heldur.
Ég bið alla sem ég hitti ekki að reyna að skilja mig. Fram að fyrirlestri komst lítið annað að. Eftir fyrirlestur leið þessi rúmi sólarhringur eins og mínúta. Sjáumst næst.
Ísland er annars alveg ágætt land, dálítið grá stemning samt þessa helgi.
Lifið í friði.
<< Home